BOOK
VARMI-GISTIHÚS
Apartments & rooms
Viðurkenningar
UM OKKUR
Varmi - Gistihús er hlýlegt og notalegt gistiheimili staðsett í Hveragerði, 42 km frá Reykjavík. Við bjóðum bæði 2-4 manna íbúðir og tveggja manna herbergi.
Við getum einnig tekið á móti hópum og hjálpað til við að skipuleggja skemmtilega dvöl í Hveragerði og nágrenni.
Íbúðirnar eru með 1 -2 svefnherbergjum ,stofu og eldhúsi. Þær henta vel fyrir 2-4 fullorðna.
Íbúðirnar eru rúmgóðar og bjartar og með góðu aðgengi. Þær eru einnig með sér baðherbergi m.sturtu og snyrtivörum.
Aðgangur er að sameiginlegum garði með útihúsgögnum og heitum potti.
HERBERGIN OKKAR OG ÍBÚÐIR
Herbergin eru björt og falleg. Öll herbergin eru með sér inngang,sér baðherbergi, ísskáp og sjónvarpi/Netflix.
Íbúðirnar eru rúmgóðar og bjartar og henta vel fyrir 2-4 fullorðna. Í þeim eru fullbúin eldhús með sjónvarpi og baðherbergi.
ÞJÓNUSTA
Gjaldfrjáls nettenging
Ókeypis háhraðanettenging (Wi-Fi) er í boði fyrir gesti okkar.
Garður
Falleg garðaðstaða er fyrir gesti okkar. Þar geturðu slakað á og notið útiverunnar.
Heitur pottur
Heitur pottur er í boði fyrir gesti okkar frá kl. 17:00-22:00 eða eftir samkomulagi.
Þjónusta
Íbúðirnar og herbergin eru með uppbúnum rúmum, handklæðum og snyrtivörum. Öll herbergin eru með ísskáp og sjónvarpi.
MYNDIR
HVAÐ ER Í BOÐI?
Varmi-Gistihús er staðsett í hjarta bæjarins. Við erum í gamla bænum, rétt við kirkjuna og hverasvæðið. Svæðið er þekkt fyrir hituð gróðurhús og hveri sem vinsælt er að skoða.
Það eru margir góðir veitingastaðir í bænum og því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Stutt í fallega ósnortna náttúru allt í kring og aðeins um klukkutíma göngutúr upp að heitum læk í Reykjadal.
Bílastæði
Ókeypis almenningsbílastæði eru í boði fyrir framan gistiheimilið.
Sundlaugin í Laugarskarði er landsfræg og í göngufæri. Það er því tilvalið að skreppa í sund og næra sál & líkama.
Nokkrar hestaleigur eru í næsta nágrenni. Starfsfólk getur aðstoðað við að bóka útreiðartúra og alls kyns skemmtun.